Félag félagsfræðikennara í framhaldsskólum stefnir á námsferð til Berlínar - 11. júní - 16. júní 2026
Lýðræði, mannréttindi, hægri öfgar og aðrar samfélagslegar hræringar
Markmið ferðarinnar er að fræðast um þær samfélagslegu breytingar sem eiga sér stað, bakslag í mannréttindum og uppgang öfga hægri. Hvernig er best að bregðast við breyttum aðstæðum í skólastofunni? Við leggjum auk þess áherslu á hópefli, hér er tækifæri til að kynnast kollegum okkar, næla sér í fróðleik og starfsþróun ásamt skemmtun og gleði!
Við erum að undirbúa spennandi dagskrá, sem verður birt þegar nær dregur.
Ferðin er fimm nætur, flogið út á fimmtudegi og heim á þriðjuudegi.
Flogið til Berlín 11. júní 2026 með Icelandair, heim 16. júní 2026.